17.08.2008 10:47:55 / Lára
Sælar!
BMW mótið er á laugardaginn og er skráning á morgun, mánudag. Ég, Erna og Alda ætlum að mæta í fyrra útræsingu (kl 8:30). Ég held að það verði hver og ein að skrá sig en ég skal reyna að ská okkur allar þegar ég skrái mig, getum þá verið saman í einu holli. Setja reminder á mánudagsmorgun gæti vel trúað að það fyllist fljótt

Svo ætlum við að halda "lokahóf" fljótlega, golf og gleði. Solla kom með þá fínu hugmynd að nýta okkur skipulagningu kvennanefndar og fara í kvennamótið sem verður haldið 6.september í Grafarholti. Eru þið ekki til í það!

Sjáumst á fimmtudaginn ...hverjar ætla að mæta ?
»
15.07.2008 12:49:09 / Lára
Sælar þið!!
(...það var tekin ákvörðun um daginn að efna til nafnasamkeppni, vantar nafn á hópinn. eina tillagan sem hefur borist er skvísurnar

)
Er ekki einhver til í golf í dag. Ég ætla að fara níu á korpunni kl.18, laust í hollið!
Sjaúmst !
kv.
Lára
»
23.06.2008 09:14:39 / systa
Hey girls 
Það þarf að skrá að miðnætti í kvöld eða eldsnemma í fyrramálið tíma fyrir næsta fimmtudag, sem er fimmtudagurinn 26.júní 
Hver vill taka að sér skráningu - LÁRA ÆTLAR AÐ SKRÁ OKKUR
Og hverjar ætla með??
Þær sem eru búnar að melda sig: Lára, Erna, Systa.....
Kveðja
Systa
»
16.06.2008 15:38:19 / systa
Halló halló
Þá fer að koma að skráningu fyrir næsta fimmtudag, hverjar eru með? Endilega kommentið 
Ég skal sjá um skráninguna....
Alda er með, ég er með og ????
Kveðja
Systa
»
09.06.2008 20:31:04 / systa
Halló skvísur 
Golf á fimmtudaginn... hverjar eru með??
Þær sem eru búnar að melda sig... ég, Elsa og ??
Ég skal taka frá tíma 
P.s. Lára og Alda ég er til í að fara á morgnanna hvort sem það er kl.6 eða eitthvað seinna, allavega þessa og næstu viku
Kveðja
Systa
»
02.06.2008 11:43:50 / systa
Halló skvísur
Þá þurfum við að skrá í kvöld fyrir fimmtudaginn næsta.... þannig að þær sem ætla mæta endilega kommentið, Solla ætlar að taka að sér að skrá okkur
Þær sem ætla mæta eru Solla, Guðný og ég (Systa), endilega komið sem flestar 
Kveðja
Systa
»
26.05.2008 21:44:17 / systa
Skvísur...
Þá fer að koma fimmtudagur og þá er planið að fara í golf eftir vinnu
Ég sjálf kemst ekki en bara endilega drífa sig af stað stelpur
Fór á Grafarholtið um daginn með mömmu og hann kemur miklu betur undan vetri heldur en Korpan (að mínu mati) seinni níu eru reyndar aðeins verri, enda á opnara svæði. Það var vetrargrín á braut 2 og 10.
En ég kem með næst, ekki spurning 
Kveðja
Systa
»
09.12.2007 23:32:00 / systa
Jæja stelpur...
Hvað segið þið gott?
Ég ákvað að setja síðuna okkar í jólabúning
á nefnilega að vera lesa og læra undir próf... en nenni því alveg engan veginn! 
En komum við ekki ALLAR hressar inn eftir áramótin og tökum þetta á hörkunni? 
Kveð í bili...
Systa
»
30.08.2007 10:50:59 / systa
Hæhæ skvísur!! 
Einsog kannski einhverjar ykkar hafa tekið eftir þá setti Erna inn comment á síðustu færslu! Þið sem ekki hafið séð það þá hljóðaði commentið eitthvað í þessa átt...
Hún Ragga okkar bauð okkur að koma í kennslu til sín í vetur og ætlar að bjóða okkur afslátt gegn því að við verðum duglegar að mæta og æfa okkur!
Fyrir hönd þeirra sem eru virkir í klúbbnum þáði Erna boðið með þökkum - en við verðum væntanelga að hafa sambandi við hana til að fá tíma og annað! 
Mér líst sjálfri alveg rosalega vel á þetta og ætla að skella mér í tíma hjá henni!!
Kveðja Systa
»
11.08.2007 10:28:29 / systa
Hæ
stelpur!!
Ég leyfði
mér að breyta síðunni aðeins, var komin með soldið leið á þessum
þunga græna lit... 
En hvað
segið þið, eru engir fleiri sem eru til í að hittast hvort sem það
er að spila 9 eða 18 og borða svo með okkur 
Kveðja Systa
»
Síður:
1 2 3